Enski boltinn

Vonar að Ronaldo skrifi undir nýjan samning

Elvar Geir Magnússon skrifar
Ronaldo verður áfram með Manchester United.
Ronaldo verður áfram með Manchester United.

Sir Alex Ferguson segir að Cristiano Ronaldo gæti orðið lengur hjá Manchester United en eitt tímabil til viðbótar.

Hann segist binda vonir við að hann muni skrifa undir nýjan samning við félagið.

„Cristiano á fjögur ár eftir af samningi sínum en ég vona að á einhverjum tímapunkti muni hann framlengja hann. Hann er ánægður hérna og þegar hann eldist mun hann vonandi læra að meta það meira að fá að vera hér," sagði Ferguson.

Ferguson lýsti yfir ánægju sinni með viðtalið við Ronaldo þar sem leikmaðurinn sagði frá því hver ástæða þess væri að hann hefði viljað fara til Real Madrid.

„Það er mjög óvanalegt að leikmenn vilji fara frá Manchester United og ég held að Cristiano skilji það. Við áttum mjög góðan fund og þessu máli er núna lokið," sagði Ferguson.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×