Enski boltinn

Vonast til að Rooney nái fyrsta leik

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Wayne Rooney í leik með Manchester United.
Wayne Rooney í leik með Manchester United. Nordic Photos / Getty Images

Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, er vongóður um að Wayne Rooney verði með í fyrsta leik liðsins á næstkomandi tímabili.

United mætir Portsmouth á sunnudaginn í leik um Samfélagsskjöldinn og er útilokað að Rooney verði með í honum. Hann gæti hins vegar verið með er United mætir Newcastle um aðra helgi.

Rooney veiktist eftir að hann náði sér í vírus á ferðalagi félagsins í Nígeríu en hefur nú jafnað sig og æfði með United í dag.

„Ef hann nær að æfa í sjö eða átta daga er möguleiki á því að hann verði með. Honum líður mun betur og læknar segja ástand hans gott."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×