Enski boltinn

Wenger biður fólk að standa með Adebayor

Elvar Geir Magnússon skrifar
Emmanuel Adebayor.
Emmanuel Adebayor.

Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, hefur biðlað til stuðningsmanna félagsins að standa með sóknarmanninum Emmanuel Adebayor.

Leikmaðurinn var í sumar sterklega orðaður við Barcelona og Real Madrid og gaf það í skyn að hann vildi yfirgefa Arsenal. Hann fór síðan fram á umtalsverða launahækkun hjá Arsenal og var það ekki til að auka vinsældir hans meðal dyggustu stuðningsmanna.

Adebayor fékk misjafnar móttökur frá áhorfendum þegar Arsenal lék sinn fyrsta leik í ensku úrvalsdeildinni um síðustu helgi.

„Við þurfum að standa við bakið á honum og sýna honum stuðning því hann er mjög mikilvægur liðinu. Þú vilt að stuðningsmenn liðsins þíns standi með þér," sagði Wenger.

„Það sem átti sér stað í sumar hafði ekki áhrif á hans löngun til að standa sig. Allir leikmenn þurfa að finna það að þeir séu velkomnir," sagði Wenger.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×