Fótbolti

Eiður kom inn sem varamaður

Elvar Geir Magnússon skrifar
Þrír leikir voru í forkeppni Meistaradeildarinnar í kvöld.
Þrír leikir voru í forkeppni Meistaradeildarinnar í kvöld.

Barcelona, Panathinaikos og Juventus komust í kvöld í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu. Börsungar töpuðu í Póllandi 1-0 fyrir Wisla Krakow en 4-0 sigur í fyrri leiknum kemur þeim áfram.

Eiður Smári Guðjohnsen var varamaður í liði Barcelona en hann kom inn fyrir Xavi á 57. mínútu.

Amauri skoraði mark Juventus sem gerði 1-1 jafntefli við Artmedia Petrzalka í Slóvakíu. Juventus kemst áfram 5-1 samanlagt. Panathinaikos vann 1-0 sigur á Sparta Prag í kvöld og kemst áfram 3-1 samanlagt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×