Enski boltinn

Ungur framherji til Fulham

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Roy Hodgson, stjóri Fulham.
Roy Hodgson, stjóri Fulham. Nordic Photos / Getty Images

Roy Hodgson, stjóri Fulham, hefur gengið frá kaupum á hinum sautján ára gamla Danny Hoesen frá Fortuna Sittard.

Hoesen þykir efnilegur leikmaður en hann sagði í samtali við heimasíðu Fortuna Sittard að hann getur ekki skorast undan þeirri áskorun að fá tækifæri til að spila í ensku úrvalsdeildinni.

„Ég mun byrja með U-18 ára liðinu en þjálfarinn hefur gefið til kynna að ég gæti fljótlega komist í varaliðið," sagði Hoesen.

Þetta er tólfti leikmaðurinn sem Fulham kaupir nú í sumar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×