Fótbolti

Ronaldo orðaður við Flamengo

NordicPhotos/GettyImages

Fjölmiðlar í Brasilíu slá því föstu að framherjinn Ronaldo muni ganga í raðir Flamengo í heimalandinu um leið og hann nær sér eftir hnéuppskurð. Samningur Ronaldo við AC Milan rann út í sumar og sagt er að hann hafi þegar samþykkt að snúa aftur til heimalandsins eftir 15 ára fjarveru.

Endurhæfing kappans mun ganga mjög vel og vera á undan áætlun, en hann meiddist illa í leik með Milan gegn Livorno í febrúar síðastliðnum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×