Menning

Danskur Niflungahringur

Óperuhúsið í Kaupmannahöfn fær mikið rými í nýrri danskri útgáfu af Niflungahringnum eftir Wagner.
Óperuhúsið í Kaupmannahöfn fær mikið rými í nýrri danskri útgáfu af Niflungahringnum eftir Wagner.

Í gær kom út á vegum Decca safn DVD-diska með Niflungahring Wagners í sviðsetningu Konunglega danska leikhússins. Uppsetningin er frá 2006 og er verk hins kornunga óperustjóra, Kasars Bech Holten. Kassinn kemur út eftir hálfan mánuð í Þýskalandi, sama dag og Iréne Theorin, sem syngur Brynhildi, kemur fram í Bayreuth í hlutverki Ísoldar.

Upptakan kostaði 82 milljónir íslenskra króna en Þykir líkleg til að styrkja stöðu óperunnar á óperumarkaði Evrópu. Flytjendur gáfu eftir launin sín og stofnuðu samlag sem tekur við hlut þeirra af útgáfunni. Óperan tekur yfir fjórtán klukkustundir í flutningi. Er þetta eina útgáfan sem Decca hefur á boðstólum af verkinu en fyrir á markaði eru sjö útgáfur, tvær þeirra upprunnar í Bayreuth. Þrjár sýningar voru teknar upp og það án þátttöku Danska ríkisútvarpsins sem hefur lagt af sendingar frá óperusýningum sökum fjárskorts. Mikið ýtarefni er á diskunum, meðal annars langt samtal óperustjórans og Margretar Þórhildar Danadrottningar. Verkið er gefið út undir titlinum Danski Niflungahringurinn. - pbb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.