Formúla 1

Massa á ráspólnum

Elvar Geir Magnússon skrifar

Felipe Massa, ökumaður Ferrari, náði besta tímanum í tímatöku fyrir kappaksturinn í Tyrklandi. Hann verður því á ráspólnum en þar fyrir aftan er Heikki Kovailainen á McLaren og Lewis Hamilton er þriðji.

Brasilíumaðurinn Massa virðist finna sig ansi vel í Istanbúl en hann hefur unnið kappaksturinn þar tvö síðustu ár. Kimi Raikkönen sem leiðir stigakeppni ökumanna mun ræsa fjórði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×