Ísland í pottinum er dregið verður í undankeppni HM kvenna Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 25. janúar 2008 11:46 Júlíus Jónasson er landsliðsþjálfari kvenna í handbolta. Mynd/Anton
Um helgina verður dregið í undankeppni EM kvenna í handbolta sem fer fram dagana 2.-14. desember næstkomandi í Makedóníu. Ísland komst upp úr sínum riðli í forkeppninni og verður því með í pottinum þegar dregið verður um helgina. Tvö og tvö lið dragast saman og mætast þau heima og að heiman. Leikið verður helgina 31. maí - 1. júní annars vegar og 7.-8. júní hins vegar. Drátturinn fer fram klukkan 11.00 að íslenskum tíma í Lillehammer þar sem leikið verður til úrslita á EM í handbolta nú um helgina Sextán lið munu taka þátt í lokakeppni EM í Makedóníu og eru sex lið þegar búnar tryggja sér sæti í lokakeppninni. Norðmenn eru ríkjandi Evrópumeistarar og fá því beinan þátttökurétt auk þeirra fjögurra þjóða sem náðu 2.-5. sæti. Það eru Rússland, Frakkland, Þýskaland og Ungverjaland. Þá fá Makedónar þátttökurétt sem gestgjafar. Liðunum er raðað í þrjá styrkleikaflokka. Í fyrsta flokki eru þau sex lið frá Evrópu sem kepptu á HM í Frakklandi á síðast ári en komust ekki í undankeppnina í gegnum EM fyrir tveimur árum. Í öðrum flokki eru þau fimm lið sem kepptu á EM fyrir tveimur árum en komust ekki á HM í Frakklandi í fyrra. Í þriðja flokki eru þau níu lið sem komust áfram úr forkeppninni sem haldin var í haust. 1. styrkleikaflokkur: Austurríki, Króatía, Spánn, Pólland, Rúmenía og Úkraína. 2. styrkleikaflokkur: Danmörk, Holland, Slóvenía, Serbía og Svíþjóð. 3. styrkleikaflokkur: Hvíta-Rússland, Tékkland, Ísland, Ítalía, Litháen, Svartfjallaland, Portúgal, Slóvakía og Tyrkland. Drátturinn fer þannig fram: 1. Lið úr fyrsta og þriðja styrkleikaflokki eru dregin saman í fyrstu sex viðureignirnar. 2. Lið úr öðrum og þriðja styrkleikaflokki eru dregin saman í næstu þrjár viðureignirnar. 3. Þau tvö lið sem eru eftir í öðrum styrkleikaflokki mætast í síðustu viðureigninni.
Handbolti Mest lesið Líflátshótunum rignir yfir Víkinga: „Djöfull er þetta lasið“ Fótbolti Tiger svaf ekki eftir morðtilræðið gegn Trump Golf Bellingham pirraður út í Southgate: „Breyttu einhverju, gerðu eitthvað“ Fótbolti Einn sá skrautlegasti mættur á Opna breska Golf Uppgjör: Pólland - Ísland 0-1 | Glæsimark Sveindísar dugði til sigurs Fótbolti Uppgjörið: Shamrock Rovers - Víkingur 2-1 | Víti í súginn í uppbótartíma og Víkingar úr leik Fótbolti Frakkar í mál og vesen hjá Chelsea vegna rasískra söngva Argentínumanna Enski boltinn Southgate hefur sagt upp störfum Fótbolti Hefur áhyggjur af stöðu KR: „Get ekki séð að þetta sé að skána á nokkurn hátt“ Fótbolti Faðir Kobe Bryant er látinn Körfubolti Fleiri fréttir Guðmundur Bragi til Danmerkur Miklar væntingarnar til íslenska landsliðsins réttlætanlegar HK endurheimtir tvo leikmenn sem urðu Íslandsmeistarar með liðinu Sveinbjörn fyrsti íslenski handboltamaðurinn til að spila í Ísrael Íslensku strákarnir með bakið upp við vegg Valsmenn fá Króata í heimsókn Haukar mæta Hönunum frá Finnlandi Valskonur fara til Litháen og Haukar til Belgíu Sonur Söndru og Daníels kominn í heiminn Mögnuð endurkoma tryggði íslensku strákunum stig Norðmenn tryggðu Íslandi sæti í 8-liða úrslitum Svíarnir of sterkir fyrir íslensku strákana Össur með tólf mörk í öðrum sigri strákanna í Slóveníu Tuttuguogsjö marka stórsigur í fyrsta leik á EM Hans syrgir pabba sinn en fer 42 ára á ÓL Töpuðu rétt eftir risasigurinn „Fannst ég ekki bæta mig nægilega mikið á þessum tveimur árum“ Stelpurnar hans Þóris völtuðu yfir ólympíumeistarana Úlfurinn snýr aftur til Kiel „Miklar tilfinningasveiflur sem tóku við“ Íslendingar mættu stundum hugsa sinn gang Markvörðurinn Ísak til Drammen Hanna Guðrún næsti aðstoðarþjálfari Stjörnunnar „Geri mér alveg grein fyrir því að þetta sé á einhvern hátt umdeilt“ Elín Klara valin í lið mótsins á HM Stelpurnar tryggðu sér sjöunda sætið Íslensku stelpurnar spila um sjöunda sætið eftir tap í spennuleik Þórsararnir halda áfram að skila sér heim Segir framlög til afreksíþrótta alltof lág: „Þessar 392 milljónir duga engan veginn“ Riðlar Meistaradeildarinnar klárir: Íslendingar áberandi í bestu deild í heimi Sjá meira
Uppgjörið: Shamrock Rovers - Víkingur 2-1 | Víti í súginn í uppbótartíma og Víkingar úr leik Fótbolti
Uppgjörið: Shamrock Rovers - Víkingur 2-1 | Víti í súginn í uppbótartíma og Víkingar úr leik Fótbolti