Enski boltinn

Tiago ekki til Everton

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Tiago á góðri stundu í leik með Juventus.
Tiago á góðri stundu í leik með Juventus.

Portúgalski leikmaðurinn Tiago hefur hafnað tilboði um að gera lánssamning við enska úrvalsdeildarliðið Everton.

Juventus var búið að semja við Everton um að lána Tiago til eins árs en leikmaðurinn hafnaði tilboðinu. Þetta staðfesti Alessio Secco, yfirmaður íþróttamála hjá Tiago.

"Það eina sem þurfti var samþykki leikmannsins - og það kom aldrei. Við tókum því þannig að hann vilji vera áfram hjá okkur."

Tiago hefur þótt valda miklum vonbrigðum hjá Juventus en hann var keyptur þangað frá Lyon síðastliðið sumar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×