Enski boltinn

Robinho: Ég vil fara til Chelsea

Elvar Geir Magnússon skrifar
Robinho fagnar marki fyrir Real.
Robinho fagnar marki fyrir Real.

Brasilíski sóknarmaðurinn Robinho hefur gefið það út að hann vilji fara frá Real Madrid og ganga til liðs við Chelsea. Enska liðið hefur verið á eftir þessum snjalla leikmanni í allt sumar.

„Ég vil fara. Ég er búinn að segja forsetanum frá því, stjórninni og þjálfaranum. Ég vill spila í ensku úrvalsdeildinni," sagði Robinho við spænska fjölmiðla.

„Ég er að segja sannleikann. Ég vil fara og hef karakterinn til að segja það hreint út. Ég vil ekki vera áfram hjá Real. Það er ekki vegna peninganna. Markmið mitt er að verða besti leikmaður heims og það er ekki möguleiki á því hjá Real Madrid."

Fyrr í vikunni gaf Real Madrid það út að Robinho yrði ekki seldur en eftir þessi ummæli Robinho er spurning hvort það breytist.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×