Fótbolti

Leverkusen aftur á toppinn

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Markaskorarar Leverkusen í leiknum í kvöld.
Markaskorarar Leverkusen í leiknum í kvöld. Nordic Photos / Bongarts
Leverkusen kom sér aftur á topp þýsku úrvalsdeildarinnar með 2-0 sigri á Wolfsburg í kvöld.

Tranquillo Barnetta og Stefan Kiessling skoruðu mörk Leverkusen sem vann sinn fjórða sigur í röð.

Nýliðar Hoffenheim geta endurheimt forystuna í deildinni með sigri á Karlsruhe á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×