Lífið

Kristín og Björgólfur Thor eiga von á sínu öðru barni

Kristín Ólafsdóttir og Björgólfur Thor Björgólfsson eru glæsilegt par.
Kristín Ólafsdóttir og Björgólfur Thor Björgólfsson eru glæsilegt par.
Kristín Ólafsdóttir og Björgólfur Thor Björgólfsson eiga von á sínu öðru barni. Eftir því sem Vísir kemst næst er Kristín komin tæpa fjóra mánuði á leið. Hún vildi ekki tjá sig um málið þegar Vísir ræddi við hana í dag.

Kristín og Björgólfur Thor eiga fyrir soninn Daníel Darra sem er þriggja og hálfs árs. Kristín er kvikmyndaframleiðandi og framleiddi meðal annars myndirnar Börn og Foreldrar en Björgólfur Thor er eins og flestir vita ríkasti maður Íslands og farsælasti athafnamaður landsins undanfarin ár.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.