Enski boltinn

Richards fékk að fara heim af sjúkrahúsinu

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Micah Richards er borinn af velli.
Micah Richards er borinn af velli. Nordic Photos / Getty Images

Micah Richards fékk að fara heim af sjúkrahúsi í gærkvöldi eftir að hann missti meðvitund í leik Manchester City og West Ham í gær.

Richards lenti í slæmu samstuði við Tal Ben Haim, liðsfélaga sinn, í leiknum í gær og tafðist leikurinn um átta mínútur á meðan það var hlúð að honum.

Hann var svo fluttur á sjúkrahús þar sem rannsóknir leiddu í ljós að honum væri frjálst að halda heim á leið.

Hann fékk þó heilahristing og missir líka af viðureign City gegn Midtjylland í UEFA-bikarkeppninni á fimmtudaginn.

„Þetta var ekki eins slæmt og það leit út fyrir að vera," sagði Mark Hughes, stjóri City, strax eftir leik. „Hann fékk slæmt höfuðhögg en ætti að vera í lagi."

City vann leikinn, 3-0.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×