Menning

Grýla og familía

Brian Pilkington myndlistarmaður.
Brian Pilkington myndlistarmaður. Fréttablaðið/Valli

Í dag er opnuð sýning í Hafnarborg á nýjum myndskreytingum eftir Brian Pilkington af íslensku jólasveinunum, foreldrum þeirra, Grýlu og Leppalúða, þessari séríslensku vandamálafjölskyldu. Sýningin mun standa fram á þrettándann og er tilvalið að fara með börnin í Fjörðinn til að skoða þessar teikningar Brians.

Brian Pilkington er fæddur í Englandi 1950. Hann er þekktur fyrir snjallar bókaskreytingar og hefur skrifað og myndskreytt fjölda barnabóka, bæði fyrir íslenskan og erlendan markað. Meðal bóka Brians má nefna Örkin hans Nonna (1988), Afi gamli jólasveinn (1990), Ástarsaga úr fjöllunum (höfundur texta: Guðrún Helgadóttir 1981), Hundrað ára afmælið (höf. texta: Þráinn Bertelsson 1984) og Blómin í túninu (höf. texta: Ingibjörg Sigurðardóttir, 1985). Árið 2003 hlaut Brian Dimmalimm, íslensku myndskreytiverðlaunin, fyrir bók sína Mánasteinar í vasa.

Á síðustu árum hafa bækur Brians um íslenska þjóðtrú og vættir vakið athygli innanlands og utan og eru myndskreytingar hans af jólasveinunum skemmtileg viðbót í þá flóru.

Sýningin er í veitingastofu Hafnarborgar sem er opin alla virka daga frá kl. 11-19, fimmtudaga til kl. 21 og um helgar frá kl. 11-17. Veitingasala Hafnarborgar er rekin af Manni lifandi en fyrirtækið er þekkt fyrir frábæra heilsurétti og kökur.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×