Látinn borga fyrir bólusetningu sem aldrei var framkvæmd 19. janúar 2008 17:15
Maður sem fór á læknamiðstöðina við Smáratorg í dag, er ósáttur við þá meðferð sem hann fékk þar. Hann kveðst hafa lesið í fjölmiðlum að ekki væri of seint að láta bólusetja sig þótt fyrstu tilfellin séu komin upp.Þegar hann kom á læknamiðstöðina greiddi hann 2.200 krónur. Eftir klukkustundar bið hitti hann hann lækni sem sagði að allt bóluefni væri á þrotum. Við svo búið kvaddi hann en kom við í móttökunni og óskaði eftir endurgreiðslu, þar sem engin þjónusta hefði verið veitt.Stúlkan í móttökunni sagði að það væru reglur að ekki væri endurgreitt. Aðspurð sagði hún að þær reglur væru ekki til skriflegar. Stúlkan sagði að auk þess vissi hún ekkert hvort hann hefði fengið þjónustu hjá lækninum eða ekki.Það vildi maðurinn ekki sætta sig við og hringdi stúlkan þá í lækninn, sem einnig sagði að ekki yrði endurgreitt. Maðurinn mótmælti því enn, og sagði stúlkan þá að hún myndi hringja í lögregluna ef hann færi ekki.Við svo búið yfirgaf hann læknamiðstöðina, harla ósáttur. Hann sagði í samtali við Vísi að í miðstöðinni hefði ekki verið nein tilkynning um að bóluefni væri búið, né heldur að gangslausar heimsóknir væru ekki endurgreiddar.
Innlent Mest lesið Árni Grétar Futuregrapher látinn Innlent Hópur manna réðst á Íslending í Liverpool Innlent Skilur ekki tilgang milljóna króna auglýsingar Innlent Eina sýklalyf sinnar tegundar tvöfaldast í verði Innlent Óttast að Suðurlandið verði að „eyðimörk“ í náinni framtíð Innlent Húsráðandi bað lögreglu um að vísa fimmtíu úr samkvæmi Innlent „Það er eins og Snæfellsnesið sé komið í gang“ Innlent Þrír menn leiddir frá borði Play-flugvélar Innlent Prestur á Nesinu segir nei takk við greiðslum Innlent Gefur lítið fyrir áform ríkisstjórnarinnar Innlent Fleiri fréttir Gott sparnaðarráð fyrir ríkisstjórnina að leggja niður ÁTVR Styttist í lokun flugvallar sem tengist flugsögu Íslendinga Lentu með veikan farþega í Keflavík 12 milljarða vinnsluhús byggt fyrir lax í Þorlákshöfn „Þetta er bara forkastanlegt“ Mikilvægt að andlát Hjalta yrði einhverjum til gagns „Tifandi tímasprengja“ á Suðurlandi og stökkbreyting áfengissölu Sviptur á staðnum fyrir ofsaakstur á 30-götu Gefur lítið fyrir áform ríkisstjórnarinnar Biden hyggst senda hergögn að virði átta milljarða til Ísraels Allir séu meðvitaðir um ábyrgðina sem fylgi setu í ríkisstjórn Starf framkvæmdastjóra Mannréttindastofnunar auglýst „Bóndinn á svæðinu er nú ofboðslega rólegur yfir þessu“ Hafnar því alfarið að læknar séu snuðaðir á Suðurlandi Leigubílstjóri á Fljótsdalshéraði safnar jólatrjám Akureyringar eins og beljur að vori „Evrópusuðið“ hverfi ekki með þjóðaratkvæðagreiðslu HSU svarar áhyggjufullum læknum Árni Grétar Futuregrapher látinn Eina sýklalyf sinnar tegundar tvöfaldast í verði Kalt en bjart um helgina Húsráðandi bað lögreglu um að vísa fimmtíu úr samkvæmi „Það er eins og Snæfellsnesið sé komið í gang“ Óttast að Suðurlandið verði að „eyðimörk“ í náinni framtíð Hættuástand í heilbrigðisþjónustu og óróapúls Skilur ekki tilgang milljóna króna auglýsingar Netsamband komið aftur á í Árbæ Inflúensugreiningar tvöfölduðust milli vikna Sparnaðartillögum snjóar inn: Leggja niður RÚV, loka sendiráðum og hætta að styrkja flokkana Bílvelta á Suðurlandi Sjá meira