Fótbolti

Garðar skoraði í norska boltanum

Elvar Geir Magnússon skrifar

Garðar Jóhannsson skoraði fyrra mark Fredrikstad sem vann Vålerenga 2-1 í norsku úrvalsdeildinni. Garðar jafnaði fyrir Fredrikstad en liðið er í öðru sæti deildarinnar, tveimur stigum á eftir Stabæk.

Gunnar Heiðar Þorvaldsson lék kveðjuleik sinn með Vålerenga og kom inn sem varamaður á 70. mínútu. Hann mun nú ganga til liðs við Esbjerg í Danmörku.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×