Enski boltinn

Gerrard missir af landsleikjunum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Steven Gerrard á blaðamannafundi enska landsliðsins.
Steven Gerrard á blaðamannafundi enska landsliðsins. Nordic Photos / Getty Images

Steven Gerrard mun missa af tveimur leikjum með enska landsliðinu og tveimur með Liverpool þar sem hann þarf að gangast undir aðgerð vegna nárameiðsla.

Gerrard fer í aðgerðina í dag og verður frá í 10-15 daga að sögn Rafael Benitez, knattspyrnustjóra Liverpool.

Engu að síðar þá spilaði Gerrard með Liverpool gegn Standard Liege í forkeppni Meistaradeildar Evrópu í gærkvöldi.

England mætir Andorra á útivelli í fyrstu umferð undankeppni HM 2010 þann 6. september næstkomandi og Króatíu á heimavelli fjórum dögum síðar.

Hann missir af leikjum Liverpool gegn Aston Villa á sunnudaginn og Manchester United þann 13. september.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×