Enski boltinn

Pavlyuchenko á leið í Tottenham

Elvar Geir Magnússon skrifar
Roman Pavlyuchenko.
Roman Pavlyuchenko.

Roman Pavlyuchenko segir við fjölmiðla í Rússlandi að hann sé á leið til Tottenham Hotspur frá Spartak í Moskvu. Hann segist vera á leið til Englands til að ganga frá samningum. Hann mun ekki leika með Spartak í undankeppni Meistaradeildarinnar á miðvikudag.

Valery Karpin, stjórnarmaður hjá Spartak, staðfestir að félagið hafi náð samkomulagi við Tottenham. Pavlyuchenko var markahæsti leikmaður Rússlands á Evrópumótinu í sumar en hann skoraði þrjú mörk. Tottenham hefur verið í leit að sóknarmanni eftir að Robbie Keane fór til Liverpool og þá er útlit fyrir að Dimitar Berbatov sé á förum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×