Erlent

Til hamingju með daginn....kabúmm

Óli Tynes skrifar
Rennileg fley.
Rennileg fley.

Ísraelar minnast þess að sextíu ár eru liðin frá stofnun ríkisins. Hátíðahöld vegna þess hefjast á miðvikudagskvöld og standa fram á föstudag.

Herafli landsins hefur jafnan verið undirstaða tilveru þess og háð ótal stríð og skærur við nágrannaríki sem hafa viljað það feigt. Herinn mun því leika stórt hlutverk í hátíðahöldunum.

Á meðfylgjandi mynd sést kona ganga á sólarströnd við Tel Aviv. Úti fyrir voka grá herskip sem munu taka þátt í hátíðahöldunum. Svona eru Miðausturlönd í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×