Enski boltinn

Anthony Annan eftirsóttur

Elvar Geir Magnússon skrifar
Annan í leik með landsliði Gana.
Annan í leik með landsliði Gana.

Arsenal og Manchester United hafa áhuga á miðjumanninum Anthony Annan samkvæmt heimildum íþróttadeildar Sky. Þessi 22 ára landsliðsmaður frá Gana hefur æft með Blackburn undanfarna viku.

Annan er samningsbundinn Start í Noregi og var talið að Blackburn væri í lykilstöðu til að fá leikmanninn. Nú virðist sú staða hinsvegar hafa veikst umtalsverst.

Það verður vel fylgst með Annan á fimmtudag þegar hann leikur með Stabæk gegn Rennes í Evrópukeppninni. Annan er á lánssamningi hjá Stabæk frá Start.

AC Milan, Atletico Madrid og Racing Santander eru einnig talin hafa áhuga en leikmaðurinn vill sjálfur helst fara í enska boltann.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×