Enski boltinn

Berbatov áritaði United treyju

Elvar Geir Magnússon skrifar
Dimitar Berbatov.
Dimitar Berbatov.

Breska blaðið The Sun birti í dag myndir af Dimitar Berbatov, sóknarmanni Tottenham, að árita Manchester United treyju. Leikmaðurinn hefur verið sterklega orðaður við United í sumar.

„Hann áritaði treyjuna eins og ekkert væri sjálfsagðara. Ef ég væri liðsfélagi Berbatov eða stuðningsmaður Tottenham yrði ég brjálaður. Þetta er rosaleg óvirðing, það vantaði bara að hann myndi kyssa merkið," sagði vitni að árituninni.

Jimmy Greaves, fyrrum leikmaður Tottenham og núverandi dálkahöfundur á The Sun, sagði: „Það leynir sér ekki að hann vill fara. Ef hann vill ekki vera hjá Tottenham ættu þeir að losa sig við hann," sagði Greaves.

„Þetta minnir mann á það þegar Paul Ince lét mynda sig í búningi United þegar hann var enn leikmaður West Ham," sagði Bernie Kingsley, stuðningsmaður Tottenham.

Smelltu hér til að sjá myndir af heimasíðu Sun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×