Fótbolti

Klinsmann óttast ekki að verða rekinn

AFP

Jurgen Klinsmann þjálfari Bayern Munchen óttast ekki að verða rekinn frá félaginu þó það hafi ekki byrjað eins illa í úrvalsdeildinni í meira en þrjá áratugi.

Illa hefur gengið hjá stórliðinu síðustu vikur og um helgina fylgdi það eftir töpum fyrir Bremen og Hannover með því að gera 3-3 jafntefli við Bochum á heimavelli eftir að hafa verið með tveggja marka forystu þegar nokkrar mínútur voru eftir af leiknum.

"Ég er baráttumaður og bjartsýnismaður sem hefur ætíð náð markmiðum sínum - bæði sem leikmaður og þjálfari. Við erum að ganga í gegn um erfiða tíma núna en mín reynsla er sú að hlutirnir endi yfirleitt vel," sagði Klinsmann í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×