Enski boltinn

Barton fær annað tækifæri

Elvar Geir Magnússon skrifar
Joey Barton.
Joey Barton.

Kevin Keegan, knattspyrnustjóri Newcastle, segir að miðjumaðurinn Joey Barton eigi enn framtíð hjá félaginu. Barton mun losna úr fangelsi í næstu viku eftir hálfs árs vist fyrir líkamsárás.

„Fólk hefur möguleika og það verður að virða. Ég hef ákveðið að standa við bak hans og gefa honum annað tækifæri," sagði Keegan í samtali við BBC. „Það er ýmislegt sem þarf að laga en ég held að hann geti það."

„Hann er búinn að taka út refsingu sína. Ég sagði honum að ef hann færi á beinu brautina og færi að gera hlutina rétt þá myndi ég standa með honum," sagði Keegan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×