Enski boltinn

Arteta útilokar að fara til Spánar

Arteta er lykilmaður í liði Everton
Arteta er lykilmaður í liði Everton NordcPhotos/GettyImages

Spænski miðjumaðurinn Mikel Arteta hjá Everton segist vera fullkomlega ánægður í herbúðum Everton og segist alls ekki hafa í huga að snúa til heimalandsins á næstunni. Hann hefur verið orðaður við félög á borð við Atletico Madrid í heimalandinu.

"Mig langar að snúa heim einn daginn og spila eitt eða tvö ár á Spáni, en eins og ég hef alltaf sagt, er ég ánægður hjá Everton og mér hefur liðið vel hér frá því ég kom hingað," sagði hinn 26 ára gamli leikstjórnandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×