Enski boltinn

Kranjcar frá í þrjá mánuði

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Niko Kranjcar, leikmaður Portsmouth.
Niko Kranjcar, leikmaður Portsmouth. Nordic Photos / Getty Images
Króatinn Niko Kranjcar, leikmaður Portsmouth, verður frá keppni næstu þrjá mánuðina eftir að hafa gengist undir aðgerð á ökkla.

Kranjcar sleit liðband í ökkla er hann spilaði með króatíska landsliðinu gegn Slóveníu í vináttulandsleik í síðustu viku.

Þetta þýðir að hann missir af landsleik Englands og Króatíu þann 10. september en leikurinn er liður í undankeppni HM 2010.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×