Viðskipti innlent

DeCode yfir hálfum dal á hlut

Kári Stefánsson, forstjóri DeCode.
Kári Stefánsson, forstjóri DeCode. Mynd/GVA
Gengi hlutabréfa í DeCode, móðurfélagi Íslenskrar erfðagreiningar, hefur hækkað um 14,8 prósent frá því viðskipti hófust á Nasdaq-markaðnum í Bandaríkjunum í dag og er það nú komið í 55 sent á hlut. Gengi féll hratt í síðustu viku og snert 36 sent á hlut á fimmtudag. Þá hafði það aldrei verið lægra. Á föstudag tók gengið á rás upp á við og nemur hækkunin í dag frá lægsta gildi rúmum fimmtíu prósentum á tæpri viku. Rætt var um það í síðustu viku að gengið mætti ekki vera undir einum dal og teljast til aurabréfa (e. penny-stocks) lengur en í 30 daga. Gerðist það hafa fyrirtæki sem fall í þann flokk 180 dala til að koma bréfunum upp fyrir dalinn. Takist það ekki gætu þau átt hættu á að verða afskráð. Gengi bréfa í DeCode hefur nú legið undir dalnum í ellefu daga.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×