Enski boltinn

Torres hetja Liverpool

Elvar Geir Magnússon skrifar
Liverpool-menn fagna sigurmarkinu.
Liverpool-menn fagna sigurmarkinu.

Liverpool vann Sunderland 1-0 í síðasta leik dagsins í enska boltanum. Fernando Torres var hetja Liverpool en hann skoraði sigurmarkið á 83. mínútu leiksins.

Liverpool hafði fengið hættulegri færi fram að markinu en vel skipulagt Sunderland lið reyndist þeim erfitt. Mark Torres var sérlega glæsilegt og þessi frábæri framherji byrjar tímabilið með stæl.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×