Íslenski boltinn

Heimasigrar í 1. deild

Elvar Geir Magnússon skrifar
Einar Örn Einarsson skoraði sigurmark Leiknis. Mynd/Matthías Ægisson/Leiknir.com
Einar Örn Einarsson skoraði sigurmark Leiknis. Mynd/Matthías Ægisson/Leiknir.com

Þrír leikir voru í 1. deild karla í dag en allir unnust þeir á heimavelli. ÍBV er komið með sex stiga forystu eftir 1-0 sigur á Víkingi Reykjavík. Yngvi Borgþórsson skoraði markið. Víkingar nálgast fallbaráttuna óðum.

Leiknir komst upp úr fallsæti með sigri á Fjarðabyggð 2-1. Einar Örn Einarsson skoraði sigurmark leiksins með laglegu skoti á 89. mínútu. Sveinbjörn Jónasson hafði komið gestunum yfir en Tómas Michael Reynisson jafnaði.

Einar Sigþórsson skoraði bæði mörk Þórs sem vann 2-1 sigur á Víkingi Ólafsvík. Sigurmarkið kom á 89. mínútu leiksins. Miroslav Pilipovic hafði komið Víkingum yfir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×