Fótbolti

Sundsvall tapaði fyrir Örebro

Elvar Geir Magnússon skrifar

Íslendingaliðið Sundsvall tapaði fyrir Örebro 2-1 í sænska boltanum í kvöld. Ari Freyr Skúlason og Hannes Þ. Sigurðsson voru báðir í byrjunarliði Sundsvall.

Hannes lék allan leikinn en Ari Freyr var rekinn af velli á 89. mínútu þegar hann fékk sitt annað gula spjald.

Sundsvall er í 13. sæti deildarinnar af 16 liðum en Örebro er í 12. sæti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×