Enski boltinn

Nike slítur samstarfi við Barton

Joey Barton þykir ekki heppilegur til að auglýsa fyrir Nike
Joey Barton þykir ekki heppilegur til að auglýsa fyrir Nike NordcPhotos/GettyImages

Íþróttavöruframleiðandinn Nike hefur slitið samstarfi við miðjumanninn Joey Barton hjá Newcastle í kjölfar þess að hann var dæmdur í fangelsi fyrir líkamsárás. Breska blaðið Daily Telegraph fullyrðir að Barton verði fyrir vikið af rúmlega sex milljónum króna árlega frá Nike.

Barton var í gær tilkynnt að hann fengi annað tækifæri hjá Newcastle þrátt fyrir vandræðin í einkalífinu, en Nike virðist ekki kæra sig um að nota nafn hans til að auglýsa varning sinn lengur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×