Enski boltinn

Chelsea bauð í Robinho

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Robinho fagnar marki með Raul.
Robinho fagnar marki með Raul. Nordic Photos / AFP

Chelsea hefur staðfest tilboð sitt í brasilíska leikmanninn Robinho sem er á mála hjá Real Madrid. Chelsea bauð 19,75 milljónir punda í Robinho eða rúmir þrír milljarðar króna.

Robinho hefur verið orðaður við Chelsea síðan að Luiz Felipe Scolari tók við knattspyrnustjórn liðsins í sumar.

Hins vegar hafa enskir fjölmiðlar heimildir fyrir því að umboðsmaður Robinho vilji ekki að hann fari til annars félags fyrir minna en 25 milljónir punda.

Talið er að Real hafi þegar hafnað boði upp á átján milljónir punda frá Chelsea.

Peter Kenyon, stjórnarformaður Chelsea, hefur staðfest að tilboðið var gert og ef hann kæmi yrðu það síðustu kaup félagsins í félagaskiptaglugganum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×