Fótbolti

Hamilton sprækastur á æfingum

NordcPhotos/GettyImages

Breski ökuþórinn Lewis Hamilton hjá McLaren ók manna best á æfingum fyrir Ungverjalandskappaksturinn í dag. Hann náði aðeins fjórða besta tíma á fyrri æfingunum í morgun en náði besta tíma dagsins síðari partinn.

Hamilton hefur unnið tvö síðustu mótin í Formúlu 1 og er með fjögurra stiga forskot í keppni ökuþóra. Hann ók brautina á einni mínútu og 20,554 sekúndum í dag.

Nelson Piquet á Renault náði öðrum besta tímanum í dag en var reyndar með lítið bensín í bílnum. Félagi Hamilton hjá McLaren, Heikki Kovalainen, náði þriðja best atímanum, Fernando Alonso á Renault fjórði og svo komu Ferrarri-mennirnir Raikkönen og Massa þar á eftir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×