Enski boltinn

Bellamy ekki til sölu

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Craig Bellamy, leikmaður West Ham.
Craig Bellamy, leikmaður West Ham. Nordic Photos / Getty Images

Íslendingafélagið West Ham segir að Craig Bellamy, leikmaður liðsins, sé ekki til sölu. Manchester City er sagt hafa áhuga á kappanum.

West Ham mun væntanlega ganga frá sölu á Anton Ferdinand til Sunderland nú síðar í vikunni en Scott Duxbury, framkvæmdarstjóri félagsins, segir það alls ekki ætla að selja Bellamy.

„Bellamy er samningsbundinn West Ham og er mikilvægur hluti af framtíðaráætlunum liðsins," sagði Duxbury í tilkynningu sem birtist á heimasíðu West Ham.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×