Fótbolti

Gerrard þakkar stuðningsmönnum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Steven Gerrard skorar hér mark sitt í kvöld.
Steven Gerrard skorar hér mark sitt í kvöld. Nordic Photos / Getty Images
Steven Gerrard sagði að það hefði vissulega verið frábært að skora sitt 100. mark fyrir Liverpool í kvöld.

„Það var frábært fyrir mig en við komum hingað til að vinna og komast í forystuhlutverk í riðlinum," sagði Gerrard.

„Það er alltaf frábær tilfinning að skora fyrir framan Kop-stúkuna og það var gott að geta þakkað þeim fyrir stuðninginn í gegnum árum," bætti hann við.

Liverpool vann í kvöld 3-1 sigur á PSV Eindhoven í Meistaradeild Evrópu og skoraði Gerrard þriðja mark Liverpool í leiknum.

„Ef við vinnum leiki og spilum vel mun sjálfstraustið aukast. Leikmenn ná vel saman utan vallar og við erum allir samstíga í þessu verkefni."

„En við höfum ekki enn unnið neitt. Þetta er góð byrjun en mikilvægast verður að ná í bikara í vor - eitthvað sem við höfum verið án í tvö ár."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×