Enski boltinn

Adebayor gaf 15 milljónir í hjálparstarf

NordcPhotos/GettyImages

Framherjinn Emmanuel Adebayor hjá Arsenal hefur gefið rúmar 15 milljónir króna til hjálparstarfsins í heimalandi sínu Tógó í Afríku eftir að mikil flóð gengu yfir landið í síðustu viku.

Talið er að allt að 30,000 manns hafi misst heimili sín í hamförunum sem kostað hafa fjölda mannslífa. Adebayor leikur með Arsenal gegn FC Twente í Meistaradeildinni í kvöld en er væntanlegur til heimalandsins í næsta mánuði þar sem hann mun kynna sér ástandið betur þegar hann mætir til æfinga með landsliði Tógó.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×