Enski boltinn

Búið að lækka verðið á Arshavin

Elvar Geir Magnússon skrifar
Andrei Arshavin.
Andrei Arshavin.

Andrei Arshavin gæti farið til Tottenham eftir allt en Zenit frá Pétursborg hefur lækkað verðmiðann á leikmanninum. Tottenham hætti viðræðum við Zenit í síðasta mánuði eftir að ekki tókst að semja um kaupverðið á Arshavin.

Yfirmaður íþróttamála hjá Zenit sagði í dag að félagið hefði ákveðið að lækka verðmiðann á leikmanninum. Hann vildi þó ekki gefa upp hve mikið.

Sjálfur hefur Arshavin lýst því yfir að hann vilji fara til Tottenham. Hann hefur sjálfur rætt við Juande Ramos, stjóra enska liðsins, og segist sannfærður um að Tottenham sé rétta skrefið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×