Enski boltinn

David Healy til Sunderland

Elvar Geir Magnússon skrifar
Healy hefur raðað inn mörkum fyrir landslið Norður-Írlands en náði ekki að festa sig í sessi hjá Fulham.
Healy hefur raðað inn mörkum fyrir landslið Norður-Írlands en náði ekki að festa sig í sessi hjá Fulham.

Sunderland er að ganga frá kaupunum á sóknarmanninum David Healy frá Fulham. Roy Keane, knattspyrnustjóri Sunderland, er að tryggja sér Djibril Cisse á lánssamningi svo liðinu ætti ekki að skorta möguleika í sóknarlínuna.

Roy Hodgson stjóri Fulham staðfesti að Healy væri að ganga frá samningi við Sunderland.

Sunderland vonast til að bæta fleiri leikmönnum við áður en félagaskiptaglugganum verður lokað um mánaðamótin.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×