Enski boltinn

Barry ævintýrinu ekki lokið?

NordcPhotos/GettyImages

Breska blaðið Daily Mail fullyrðir í morgun að sápuóperunni í kring um miðjumanninn Gareth Barry sé hreint ekki lokið. Blaðið segir að Liverpool hafi náð að keyra 17,5 milljóna punda tilboð í gegn og að hann muni skrifa undir hjá Liverpool í dag.

Nokkrir fjölmiðlar á Englandi héldu því fram í morgun að Liverpool hafi verið 15-20 mínútum frá því að krækja í Barry í gær, en ekki hafi tekist að klára tilboðið áður en frestur sem forráðamenn Aston Villa settu rann út.

Samkvæmt heimildum Daily Mail fengi Aston Villa 17,5 milljónir punda fyrir Barry auk varnarmannsins Steve Finnan. 








Fleiri fréttir

Sjá meira


×