Íslenski boltinn

Leifur rekinn frá Fylki

Elvar Geir Magnússon skrifar
Leifur Garðarsson.
Leifur Garðarsson.

Leifi Garðarssyni hefur verið sagt upp störfum sem þjálfari Fylkis í Landsbankadeild karla. Þá var aðstoðarmaður hans, Jón Þ. Sveinsson, einnig látinn taka pokann sinn.

Leifur var á sínu þriðja ári með Fylki en liðið hefur ollið miklum vonbrigðum í sumar og er í fallbaráttu. Í gær tapaði Fylkir fyrir KR 0-2 en liðið er í 10. sæti deildarinnar, fjórum stigum frá fallsæti og liðin fyrir neðan eiga bæði leik inni.

Páll Einarsson og Sverrir Sverrisson, fyrrum leikmenn Fylkis, taka við liðinu út leiktímabilið samkvæmt vefsíðunni fylkismenn.is. Leifur Garðarsson sagði við Fótbolta.net í kvöld að hann sé mjög ósáttur við þessi málalok










Fleiri fréttir

Sjá meira


×