Fótbolti

Meiðsli hjá Juventus

Del Piero og Trezeguet eru báðir að glíma við hnémeiðsli
Del Piero og Trezeguet eru báðir að glíma við hnémeiðsli NordicPhotos/GettyImages

Ítalska liðið Juventus á nú í nokkrum vandræðum með meiðsli, ekki síst meðal framherja sinna. Óttast er að Frakkinn David Trezeguet verði frá keppni næstu vikurnar vegna hnémeiðsla.

Alessandro del Piero er líka meiddur á hné og er tæpur fyrir deildarleikinn gegn Cagliari um helgina og óvíst er hvort þeir Mauro Camoranesi og Giorgio Chiellini nái leiknum vegna meiðsla.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×