Golf

Tiger áfram eftir bráðabana

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Tiger Woods vann nauman sigur á Aaron Baddeley.
Tiger Woods vann nauman sigur á Aaron Baddeley. Nordic Photos / Getty Images

Tiger Woods komst áfram í fjórðungsúrslit heimsmeistarakeppninnar í holukeppni sem fer fram í Arizona í Bandaríkjunum.

Woods atti kappi við Ástralann Baddeley sem púttaði fyrir sigri á bæði 17. og 18. holu en allt kom fyrir ekki. Tiger vann svo á annari holu bráðabanans með því að setja niður rúmlega þriggja metra pútt.

Fjórum kylfingum var raðað í efsta styrkleikaflokk á mótinu og er Tiger sá eini þeirra sem er enn með í mótinu.

Ernie Els og Phil Mickelson duttu snemma úr leik en í gær tapaði sá fjórði, Steve Stricker fyrir Argentínumanninum Angel Cabrera með fjórum vinningum.

Báðir Bretarnir sem voru eftir í keppninni, þeir Colin Montgomerie og Paul Casey, töpuðu sínum viðureignum í gær. Montgomerie tapaði fyrir Stewart Cink og Casey fyrir KJ Choi.

Núverandi meistari, Henrik Stenson frá Svíþjóð, vann Jonathan Byrd og þar með sína níundu viðureign í röð á mótinu.

Gríðarlega spennandi viðureignir eru frammundan í kvöld. Tiger Woods mætir KJ Choi og sigurvegarinn úr þeirri viðureign mætir annað hvort Henrik Stenson eða Woody Austin.

Justin Leonard og Vijay Singh eigast svo við og sigurvegarinn úr þeirri viðureign mætir annað hvort Angel Cabrera eða Stewart Cink.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×