Enski boltinn

Robbie Keane orðinn leikmaður Liverpool

Elvar Geir Magnússon skrifar
Keane í landsleik.
Keane í landsleik.

Robbie Keane er orðinn leikmaður Liverpool. Þessi 28 ára leikmaður kemur frá Tottenham og skrifaði hann undir fjögurra ára samning við Liverpool.

Talið er að Liverpool hafi borgað 18 milljónir punda fyrir írska landsliðsmanninn. Rafa Benítez hyggst nota hann frammi með Fernando Torres.

Hann er fimmti leikmaðurinn sem Liverpool kaupir í sumar. Áður höfðu Philipp Degen, Andrea Dossena, Diego Cavalieri og David Ngog mætt til leiks á Anfield.

Keane gæti leikið sinn fyrsta leik í búningi Liverpool á miðvikudag þegar liðið leikur æfingaleik við Villareal.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×