Enski boltinn

Lampard framlengir við Chelsea

NordcPhotos/GettyImages

Enski landsliðsmaðurinn Frank Lampard hefur skrifað undir nýjan fimm ára samning við Chelsea í ensku úrvalsdeildinni. Lampard var m.a. orðaður við Inter Milan í sumar, en hefur nú ákveðið að leika áfram með Lundúnaliðinu.

Gamli samningur Lampard hefði runnið út í lok næstu leiktíðar og óttuðust stuðningsmenn Chelsea að miðjumaðurinn færi jafnvel frá Chelsea án þess að félagið fengi krónu fyrir hann.

Lampard er þrítugur og virðist nú ætla að ljúka ferlinum hjá Chelsea þar sem hann mun spila undir stjórn Luiz Felipe Scolari á næstu leiktíð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×