Íslenski boltinn

Þórir: Málið í aganefnd

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Þórir Hákonarson er hér lengst til vinstri á myndinni.
Þórir Hákonarson er hér lengst til vinstri á myndinni. Mynd/E. Stefán

Þórir Hákonarson, framkvæmdarstjóri KSÍ, mun skjóta ummælum Guðjóns Þórðarsonar til aga- og úrskurðarnefndar KSÍ.

Nefndin fundar á þriðjudögum og því ekki ólíklegt að málið verði tekið fyrir á fundi nefndarinnar á morgun.

Guðjón sakaði Ólaf Ragnarsson, dómara leiks Keflavíkur og ÍA í gær, um að beita Stefán Þórðarson ofbeldi með því að gefa honum rauða spjaldið. Einnig sagði hann að dómarar hefðu fundað til að taka ákveða hvernig ætti að taka á Skagamönnum og þá sérstaklega Stefáni Þórðarsyni.

Þórir vildi lítið tjá sig um ummæli Guðjóns að öðru leyti. „Ég get aðeins svarað því til að þessi ummæli dæma sig sjálf. Að svo komnu máli finnst mér þau ekki svaraverð. Málið fer nú í hefðbundinn farveg og mun ég senda málið til aga- og úrskurðarnefndar."

„Ég varð orðlaus þegar ég sá þetta í gær," bætti Þórir svo við.


Tengdar fréttir

Stefán Þór: Ég fór í boltann

Stefán Þór Þórðarson segir engan vafa leika á því að hann hafi farið í boltann þegar hann fékk síðara gula spjaldið sitt í leik ÍA og Keflavíkur í gær.

Átti Stefán spjöldin skilið? (myndband)

Stefán Þórðarson fékk tvívegis að líta gula spjaldið í leik Keflavíkur og ÍA í gær og þar með það rauða, Skagamönnum til mikillar gremju.

Guðjón stendur við ummæli sín

Guðjón Þórðarson sagði í samtali við Vísi að hann standi heilshugar við þau ummæli sem hann lét falla eftir leik Keflavíkur og ÍA í gær.

Ólafur: Guðjón er að bulla

Ólafur Ragnarsson dómari segir ekkert hæft í ásökunum Guðjóns Þórðarsonar í sinn garð né heldur annarra dómara.

Guðjón: Þeirra er skömmin (myndband)

Guðjón Þórðarson, þjálfari ÍA, var ómyrkur í máli gagnvart Ólafi Ragnarssyni dómara og forystumönnum KSÍ í viðtali við Stöð 2 Sport í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×