Körfubolti

Tengist Did­dy persónu­legu leyfi LeBron James?

Smári Jökull Jónsson skrifar
LeBron James ásamt syni sínum Bronny á leik Los Angeles Lakers um síðustu helgi.
LeBron James ásamt syni sínum Bronny á leik Los Angeles Lakers um síðustu helgi. Vísir/Getty

LeBron James er kominn í leyfi hjá liði Los Angeles Lakers af persónulegum ástæðum. Ummæli James um margfrægar veislur rapparans Diddy hafa verið rifjuð upp í tengslum við fjarveru hans.

LeBron James var fjarverandi þegar Los Angeles Lakers mætti Portland Trail Blazers um síðustu helgi og var sagt að hann væri að glíma við meiðsli. Þegar ekki sást til James á æfingum í vikunni staðfesti þjálfarinn JJ Reddick að James væri kominn í leyfi.

„LeBron er ekki með liðinu akkúrat núna. Hann er fjarverandi af persónulegum ástæðum, hann er í leyfi,“ sagði Reddick og bætti við að enginn tímarammi væri til varðandi endurkomu hins tæplega fertuga James.

Fréttirnir af fjarveru James komu sama dag og MMA bardagakappinn Colby Covington birti myndband á Instagram þar sem hann velti fyrir sér tengslum LeBron við rapparann Diddy sem handtekinn var í september vegna gruns um mansal.

„Hey, það vita allir að það er ekkert partý eins og Diddy-partý,“ segir James í myndbandi sem fór í dreifingu í september og Covington birti í vikunni.

„Hvað er LeBron að meina með þessu? Hversu mörg Diddy-partý hefur hann farið í?“ spurði Covington síðan á blaðamannafundi á miðvikudag. 

„Fannst þetta gott tækifæri til að fá hvíld“

Rapparinn Diddy var eins og frægt er orðið handtekinn í september og bendlaður við mansal. Hann er einnig sakaður um að byrla og nauðga ungum konum og á yfir höfði sér meira en eitt hundrað ákærur. Hann hefur neitað sök. Þá hefur mikið verið skrifað um hin svokölluð Diddy-partý sem margar stórstjörnur eiga að hafa sótt en sagt er að partýin hafi breyst í stórar kynlífsorgíur og stóðu sum þeirra yfir í marga daga.

Á samfélagsmiðlum hafa ýmsir velt upp tengslum á milli LeBron og Diddy og jafnvel verið ýjað að því hvort LeBron muni einfaldlega leggja skóna á hilluna í kjölfarið á umræðunni.

LeBron sjálfur hefur ekkert tjáð sig um umrætt myndband síðan það fór í dreifingu eftir handtöku Diddy í september. Þjálfarinn JJ Reddick segist vera í stöðugu sambandi við James og segir mikilvægt að stjórna álaginu á stórstjörnuna sem er orðinn fertugur.

„Við verðum að vera meðvitaðir um uppsöfnuð áhrif þess að við erum að spila fleiri og fleiri leiki, Hann er slæmur í fætinum og okkur fannst þetta gott tækifæri fyrir hann að fá hvíld.“

Í nóvember tilkynnti Lebron James að hann væri hættur á samfélagsmiðlum. Það var ekki í fyrsta sinn sem að James tekur sér hlé frá samfélagsmiðlum. 

Þessi stigahæsti leikmaður NBA-deildarinnar frá upphafi hefur gert það áður en það er þá vanalega með það að markmiði að einbeita sér að körfuboltanum. 

Skipt til Warriors?

Þá hefur James verið orðaður við skipti frá Los Angeles Lakers en Golden State Warriors eru sagðir vera áhugasamir um að fá James til liðs við sig og mynda teymi með Steph Curry.

LeBron, Curry og Steve Kerr þjálfari Warriors unnu saman gullverðlaun á Ólympíuleikunum í sumar en James er með klásúlu í samningi sínum sem kemur í veg fyrir að Lakers geti skipt honum til annars liðs nema hann hafi frumkvæði að því sjálfur.

Í haust uppfyllti LeBron James draum sinn þegar hann spilaði NBA leik ásamt syni sínum Bronny en Lakers valdi strákinn í nýliðavalinu í sumar. Bronny er nú kominn í G-deildar lið Lakers en deildin er nokkurs konar þróunardeild fyrir leikmenn sem ekki fá spilatíma í NBA-deildinni. Bronny mun líklega flakka á milli NBA-deildarinnar og G-deildarinnar á tímabilinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×