Fótbolti

Juventus fylgist með Joaquin

Elvar Geir Magnússon skrifar
Joaquin í leik með spænska landsliðinu.
Joaquin í leik með spænska landsliðinu.

Joaquin, vængmaður Valencia, segist virkilega stoltur af áhuga Juventus á sér. Alessio Secco, yfirmaður íþróttamála, var staddur á Spáni á dögunum til að fylgjast með Joaquin.

„Það er alltaf ánægjulegt þegar lið sýna þér áhuga. Það er ákveðin viðurkenning fyrir leikmann, sérstaklega þegar það er stórt og sögufrægt félag eins og Juventus," sagði Joaquin.

Joaquin var meðal markaskorara í 3-0 sigri Valencia á Getafe um síðustu helgi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×