Menning

Kántrímessa annan í jólum

Séra Guðmundur Karl vonast til að sem flestir láti sjá sig í sveitamessunni sem verður haldin á öðrum degi jóla.
Séra Guðmundur Karl vonast til að sem flestir láti sjá sig í sveitamessunni sem verður haldin á öðrum degi jóla.

„Þetta verður ekkert Country Road eða Devil Went Down To Georgia. Þarna verður amerísk jólastemning sem er ekki verri jólastemning en hver önnur," segir séra Guðmundur Karl Brynjarsson, sóknarprestur í Lindakirkju í Kópavogi, um sveitamessu sem þar verður haldin annan í jólum.

„Við vorum með sams konar messu í fyrra sem mældist mjög vel fyrir. Þá voru bara jólasálmarnir, þessir hefðbundnu, fluttir í kántrístíl. Organistinn Keith Reed sem er Bandaríkjamaður átti hugmyndina að þessu og mér fannst þetta nógu klikkað til að prófa þetta," segir Guðmundur Karl. „Þetta var mjög fjölsótt í fyrra og virkilega hátíðleg stund. Fólk sagði við mann á eftir að það hefði skynjað jólasálmana á alveg nýjan hátt."

Til að skapa réttu sveitastemninguna var hey hluti af messunni í fyrra og verður vafalítið aftur í ár. Spurður hvort hestar verði ekki líka hluti af „showinu" segist Guðmundur efast um það. „Þetta eru engin fíflalæti. Þetta er hátíðleg jólaguðsþjónusta en tónlistin er bara flutt með þessum hætti."

Lindarkirkja hefur hingað til verið með jólahelgihald í Linda- og Salaskóla en fjórtánda desember verður breyting þar á þegar nýr og glæsilegur safnaðarsalur verður vígður.

Óvissa er aftur á móti um byggingu nýrrar kirkju.

„Það er óvissuástand hjá okkur eins og gagnvart öllu í þessu þjóðfélagi," segir Guðmundur og bætir við að aðsókn í messur hafi aukist mikið í haust. „Það er búið að gerast einu sinni í haust að við höfum farið undir 200 manns á sunnudögum," segir hann.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.