Fótbolti

Lehmann hættur með landsliðinu

Elvar Geir Magnússon skrifar
Lehmann spilar ekki aftur fyrir landsliðið.
Lehmann spilar ekki aftur fyrir landsliðið.

Markvörðurinn Jens Lehmann hefur tilkynnt að hann sé hættur að leika með þýska landsliðinu. Lehmann er 38 ára en hann gekk til liðs við Stuttgart frá Arsenal í sumar.

Hann lék 61 landsleik á ferlinum. Hann er ekki viss um hvort hann haldi áfram í fótbolta eftir að eins árs samningi hans við Stuttgart lýkur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×