Enski boltinn

Barry fer ekki til Liverpool

Elvar Geir Magnússon skrifar
Gareth Barry.
Gareth Barry.

Aston Villa hefur tilkynnt að Gareth Barry verði áfram hjá félaginu og muni ekki ganga til liðs við Liverpool. Villa segir að Liverpool hafi ekki náð að klára kaupin fyrir ákveðinn frest sem það hafi fengið.

Fresturinn er nú úti og Gareth Barry verður því áfram í herbúðum Aston Villa. Tilraunir Liverpool til að klófesta leikmanninn fóru mjög í taugarnar á Martin O'Neill, knattspyrnustjóra Villa.

Barry hefur leikið með Villa í undanförnum æfingaleikjum og kom einnig við sögu í leik liðsins í Intertoto-keppninni um síðustu helgi.

Rafael Benítez, knattspyrnustjóri Liverpool, hafði áður sagt að félagið þyrfti að selja fleiri leikmenn til að hafa efni á Barry en talið er að Villa hafi sett 18 milljón punda verðmiða á leikmanninn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×